Lög Félags íslenskra  KENNARA Í NÝSKÖPUNAR- OG FRUMKVÖÐLAMENNT

Samþykkt á stofnfundi í Kennarahúsinu Laufásvegi 81 Reykjavík, 10.12.2005 breytt á aðalfundi 30.nóvember 2007.

 1. gr. Félagið heitir Félag  íslenskra kennara í nýsköpunar- og frumkvöðlamennt, heimili þess og varnarþing skal vera í Reykjavík. Skammstafað FÍKNF.  
 

2. gr. Tilgangur félagsins er:  

*         koma á samvinnu kennara í nýsköpunar- og frumkvöðlamennt;

*         bæta þekkingu kennara í nýsköpunar- og frumkvöðlamennt;

*         beita sér fyrir bættri stöðu námsgreinarinnar nýsköpunar- og frumkvöðlamennt;

*         beita sér fyrir kynna og útbreiða nýsköpunar- og frumkvöðlamennt.
 

3. gr. Tilgangi sínum hyggst félagið með því:

*         standa fyrir og styðja við kynningar á nýsköpunar- og frumkvöðlamennt, fyrir ráðamenn, almenning og skólafólk;

*         stuðla fundarhaldi og fræðslustarfi;

*         vera málsvari og upplýsingaveita fyrir félagsmenn og áhugafólk;

*         standa vörð um stöðu námsgreinarinnar og leitast við styrkja hana;

*         beita sér fyrir grunn- og framhaldsnámi og endurmenntun fyrir kennara í nýsköpunar- og frumkvöðlamennt;

*         fylgjast með og kynna nýjungar í greininni;

*         gefa út leiðbeinandi upplýsingar um þær kröfur sem kennsla í nýsköpunar- og frumkvöðlamennt gera til kennara, skipulags, skólahúsnæðis og tækja;

*         stuðla útgáfustarfssemi.
 

4. gr. Félagsmenn og árgjöld

*         Félagsmenn geta þeir verið sem fást við nýsköpunar- og eða frumkvöðlamennt.

*         Árgjald skal ákveðið á aðalfundi en miðað skal við starfsemi félagsins fjármagnist mestu leyti með styrkjum, þjónustu og frjálsum framlögum frá ýmsum aðilum. 
 

 5. gr. Ársreikningar 
Reikningsár
skal vera almanaksárið. Reikningar skulu vera yfirfarnir af félagskjörnum endurskoðendum og liggja frammi á  aðalfundi. 
 

6. gr. Aðalfundur
Aðalfund
skal halda fyrir febrúarlok ár hvert. Til hans skal boða bréflega með tveggja vikna fyrirvara og telst tölvupóstur þar með. Aðalfundur er löglegur ef löglega er til hans boðað. Störf aðalfundar eru m.a.:
 

*         Skýrsla stjórnar til afgreiðslu;

*         Skýrslur fastanefnda til afgreiðslu;

*         Framlagðir endurskoðaðir reikningar til afgreiðslu;

*         Kosning í stjórn og varastjórn;

*         Kosning tveggja endurskoðenda og eins til vara;

*         Tillögur og lagabreytingar afgreiddar;

*         Önnur mál.
 

7. gr. Stjórn félagsins  

*         Skipa 5 aðalmenn og tveir til vara. Formaður og varamenn skulu kosnir til árs í senn, en aðrir til tveggja ára.

*         Á hverjum aðalfundi skulu vera kosnir tveir aðalmenn til tveggja ára.

*         Stjórnarmenn skipta með sér verkum, aðrir en formaður. Aðrir stjórnarmenn eru varaformaður, ritari, gjaldkeri, umsjónamaður félagatals og umsjónamaður heimasíðu.

*         Fyrsta stjórnarfund, skal halda innan 15 daga frá aðalfundi.

 

8. gr. Fastar starfsnefndir

*         Á fyrsta stjórnarfundi skal stjórnin skipa í fræðslu- og útgáfunefnd. Skulu 3 menn skipa nefndina.

*         Einnig skal stjórnin skipa í uppstillingarnefnd. Skulu 2 menn skipaðir í nefndina ásamt einum

stjórnarmanni. Formaður félagsins kallar nefndirnar saman.

*         Nefndirnar skulu skila skýrslu um störf sín til stjórnar fyrir aðalfund ár hvert og skulu þær kynntar á aðalfundi á hverju ári.

*         Starfsvið fræðslu- og útgáfunefndar skal vera vinna fræðslu- og útgáfumálum félagsins.

*         Starfsvið uppstillingarnefndar skal vera koma með tillögur um menn í stjórn og nefndir.
 

9. gr. Afl atkvæða
Einfaldur
meirihluti ræður úrslitum mála á fundum félagsins. Tvo þriðju atkvæða þarf þó til breyta samþykktum félagsins, enda það gert á lögmætum aðalfundi. 

 
10. gr. Tillögur og  lagabreytingar

Tillögur
og  lagabreytingar skal senda með aðalfundarboði.

 
11.gr.  Slit félagsins
Komi til slita félagsins renna eignir þess til Kennarasambands Íslands. Félagsmenn eiga ekki tilkall til eigna félagsins. Ákvörðun um slit félagsins skal tekin á stjórnarfundi og ræður einfaldur meirihluti.