|
Stjórnarfundur
Fíkn 15.01.2008
Fundastaður:
Kennaraháskóla Íslands Bolholti 6.
Mættir
voru: Svanborg, Örn, Róbert og Rósa
1.
Framhaldsaðalfundur. Flest er í rauninni afgreitt og þessi fundur
formsatriði vegna breyttra laga félagsins. Ákveðið að halda fundinn á undan
málþinginu kl 11-12.
2.
Málþing 29.febrúar – frá kl 13 (skráning 12:30) til 15, verður haldið í
Háskólanum í Reykjavík.
3.
Niðurstöður rannsóknar á frumkvöðlamennt í verkmenntun á Íslandi á vegum
Leonardo skrifstofunnar, kynntar lauslega – Svanborg kynnti. Frumkvöðlamennt er
brotakennd og fáir nemendur sem njóta. Nokkuð um góða vaxtarbrodda og margir með
skapandi áherslur og nýsköpunar og frumkvöðlahvetjandi þætti. Aðeins einn
framhaldsskóli á Íslandi sem setur nýsköpunar- og frumkvöðlamennt í skólastefnu
sína, Framhaldsskólinn á Húsavík. Gott dæmi um nýsköpunar- og frumkvöðlaáfanga
eru nokkrir áfangar í Framhaldsskólanum á Suðurnesjum. Fleiri dæmi voru um
spennandi og frumlega áfanga á nokkrum stöðum.
4. Viðurkenning til skóla / kennara sem
hafa unnið gott starf á sviði nýsköpunar- og eða frumkvöðlamenntar. Skóli var
valinn sem verður tilkynntur á málþinginu.
5. Samkeppni um merki félagsins –
frestað.
6. Rætt um að taka þátt í Evrópuverkefni
sem haft var samband við Rósu vegna. Jákvæðar undirtektir
|