|
Fjórði stjórnarfundurinn
2007
Stjórnarfundur í FÍKNF
2007
þann 7.febrúar haldinn í Bolholti í Listgreinahúsi KHÍ.
Mættir voru: Svanborg, Örn, Róbert, Rósa og Harpa
Fundur hófst kl. 16:15
1.1. Nafn á málþingið (Hver er tilgangurinn með málþinginu?)
Ákveðið var að nafnið á málþinginu yrði:
Félag kennara í nýsköpunar- og frumkvöðlamennt halda/kynna málþingið
SKÖPUNARKRAFTUR SKÓLANNA
1.2.
Dagskrá málþingsins: (tillaga að mestu í samræmi við áður
umrædd atriði á fundum stjórnar)
Farið var yfir áður uppsetta dagskrá og henni hagrætt:
Athuga breytingar þannig að Kristín rektor Háskóla Reykjavíkur setji málþingið
ásamt Ólafi Proppé.
Rósa
kom með hugmynd um að fá Hilmar Veigar Pétursson framkvæmdarstjóra tölvuleikja
fyrirtækisins CCP sem hannar m.a. EVE-online
til að vera með innlegg málþingsins. Upp komu spurningar eins og; Hver er
tenging fyrirtækisins við skólana? Hvernig myndi þetta mælast fyrir hjá
málþingsgestum? og hvort hægt væri að þróa skólasamfélag í leiknum EVE-online?
(en fyrir er m.a. útvarpsstöð). Eftir nokkrar vangaveltur komu fjölmörg rök sem
studdu þessa hugmynd og ætlar Rósa að hafa samband við Hilmar ( ath. hvort hann
gæti haft þessar vangaveltur í huga!). Einnig kom tillaga um vara áætlun en það
er að fá annað hvort “Lani Yamamoto” eða Stefán Pálsson staðhaldara Rafheima ef
ekki næst að fá Hilmar.
Róbert hafði sent í tölvupósti hugmyndir af umræðu sem gæti farið fram á
vinnustofu Hilmars í VMA þar sem fjallað væri um frumkvöðla- og
nýsköpunarverðlaun FÍKNF (hvernig er hægt að lokka fram jákvæða athygli). Hvaða
forsendur eigum við að miða við? Hverjir eiga að sækja um? Hverjir skara fram úr
og hverjir ekki o.s.frv. Allir voru sammála um mikilvægi þeirra atriða sem hann
kom inn á.
Ákveðið var að Harpa stýrði málstofu sem fjalla á um tengsl skólanna við
atvinnufyrirtæki og myndi hún setja saman dæmi m.a. frá verkefni sem verið er að
fara af stað með í Reykjanesbæ og helst víðar. Hugmyndir af umræðum gætu verið;
Hvaða tækifæri hafa skólarnir við sitt nánasta umhverfi? Hvernig er best að
setja saman nám/verkefni í tengslum við atvinnulífið/veruleikann? O.s.frv.
Málstofa Gísla um notkun tölvutóla í nýsköpunarkennslu breytist í kynningu fram
á gangi með tilheyrandi veggspjöldum og öðrum upplýsingum.
Einnig kom upp hugmynd hvort hægt væri að setja upp kynningu frá lego-keppninni.
1.4. Veitingar (kaffi) og kostnaður á málþingið (5 mín)
-
Ákveðið var að
sækja um styrk til menntamálaráðuneytinu til að dekka tilfallandi kostnað og
einnig var samþykkt að taka þátt í ferðakostnaði Hilmars.
-
Svanborg ætlar
að sjá um að panta kaffiveitingar.
-
KHÍ býður uppá
notkun húsnæðis en gert var grein fyrir því að borga þyrfti fyrir alla
tækniaðstoð sem unnin yrði af smiðjumönnum KHÍ.
1.5. AUGLÝSINGAR – hvar hvernig. Kostnaður? Hönnun og auglýsingar? (10 mín)
-
Rósa ætlar að
athuga hvort menntamálaráðuneytið gæti sent út tilkynningu um málþingið.
-
Einnig á að
senda tilkynningar í gegnum póstlista.
2.
Önnur mál (5 mín)
-
Rósa sagði
stuttlega frá þeirri umræðu sem fara á fram í málstofunni undir hennar stjórn
en þar á að kynna nýjar áherslur nýsköpunarkeppninnar en nýlega var skipt um
rekstraraðila (vitinn sér nú um reksturinn) og er keppnin nú í eigu
menntamálaráðuneytis.
-
Rósa sagði
einnig frá Sprotaþingi sem hún hafði nýlega sótt sem haldið var af samtökum
iðnaðarins og sprotafyrirtækjum. Þar kom fram að stjórnmálaflokkur ynni að
mótun þingsáætlunartillögu í nýsköpun og frumkvöðlamennt.
Fundi slitið kl. 17:45
Fundarritari Harpa Magnúsdóttir
|