|
Aukaaðalfundur
Aukaaðalfundur FIKNF þann
26.maí 06 haldinn í Skipholti í Listgreinahúsi KHÍ.
Fundartími frá kl 17:00 -
18:00
Mættir:
Gísli, Svanborg, Steinhildur, Örn, Rósa og Róbert í símanum.
Dagskrá
fundarins:
Boðað var til
þessa aukaaðalfundar samkvæmt lögum og telst hann því löglegur. Formaður lagði
fram tillögu að lagabreytingum sem var samþykkt einhljóma.
Stjórn FÍKNF gerir tillögu um að við lögin bætist 11. grein sem hljóði svo
11.gr
Komi til slita félagsins renna eignir þess til Kennarasambands Íslands.
Félagsmenn eiga ekki tilkall til eigna félagsins. Ákvörðun um slit félagsins
skal tekin á stjórnarfundi og ræður einfaldur meirihluti.
Skrifað var undir
löginn. Fundi slitið.
Fundarritari Rósa Gunnarsdóttir
Lög Félagsins eins og þau
lika út núna.
Félags íslenskra KENNARA Í NÝSKÖPUNAR- OG FRUMKVÖÐLAMENNT
Samþykkt á stofnfundi í
Kennarahúsinu Laufásvegi 81 Reykjavík, 10.12.2005.
1. gr.
Félagið heitir Félag
íslenskra kennara í nýsköpunar- og frumkvöðlamennt, heimili þess og varnarþing
skal vera í Reykjavík. Skammstafað FÍKNF.
2. gr.
Tilgangur félagsins
er:
- að koma á samvinnu kennara í nýsköpunar- og
frumkvöðlamennt
- að bæta þekkingu kennara í nýsköpunar- og
frumkvöðlamennt
- að beita sér fyrir bættri stöðu námsgreinarinnar
nýsköpunar- og frumkvöðlamennt
- Að beita sér fyrir að kynna og útbreiða
nýsköpunar- og frumkvöðlamennt
3. gr.
Tilgangi sínum hyggst
félagið ná með því:
- Að standa fyrir og styðja við kynningar á
nýsköpunar- og frumkvöðlamennt, fyrir ráðamenn, almenning og skólafólk
- að stuðla að fundarhaldi og fræðslustarfi
- vera málsvari og upplýsingaveita fyrir félagsmenn
og áhugafólk
- að standa vörð um stöðu námsgreinarinnar og
leitast við að styrkja hana.
- að beita sér fyrir grunn- og framhaldsnámi og
endurmenntun fyrir kennara í nýsköpunar- og frumkvöðlamennt
- að fylgjast með og kynna nýjungar í greininni.
- að gefa út leiðbeinandi upplýsingar um þær kröfur
sem kennsla í nýsköpunar- og frumkvöðlamennt
gera til kennara, skipulags,
skólahúsnæðis og tækja
- að stuðla að útgáfustarfssemi
4. gr.
Félagsmenn og árgjöld
- Félagsmenn geta þeir verið sem fást við
nýsköpunar- og eða frumkvöðlamennt
Árgjald skal ákveðið á
aðalfundi en miðað skal við að starfsemi félagsins fjármagnist að mestu leyti
með styrkjum,
þjónustu og
frjálsum framlögum frá ýmsum aðilum.
5. gr.
Ársreikningar
Reikningsár
skal miða við ár í senn, milli aðalfunda. Reikningar skulu vera yfirfarnir af
félagskjörnum endurskoðendum og liggja frammi á aðalfundi.
6. gr.
Aðalfundur
Aðalfund
skal halda fyrir nóvemberlok ár hvert. Til hans skal boða bréflega með tveggja
vikna fyrirvara og telst tölvupóstur þar með. Aðalfundur er löglegur ef löglega
er til hans boðað. Störf aðalfundar eru m.a.:
- Skýrsla stjórnar til afgreiðslu
- Skýrslur fastanefnda til afgreiðslu
- Framlagðir endurskoðaðir reikningar til
afgreiðslu
- Kosning í stjórn og varastjórn
-
Kosning
tveggja endurskoðenda og eins til vara
- Tillögur og lagabreytingar afgreiddar
- Önnur mál
7. gr.
Stjórn félagsins
-
skipa 5
aðalmenn og tveir til vara. Formaður og varamenn skulu kosnir til árs í senn,
en aðrir til tveggja ára. Á hverjum aðalfundi skulu vera kosnir tveir aðalmenn
til tveggja ára.
- Stjórnarmenn
skipta með sér verkum, aðrir en formaður. Aðrir stjórnarmenn eru varaformaður,
ritari, gjaldkeri, umsjónamaður félagatals og umsjónamaður heimasíðu.
-
Fyrsta
stjórnarfund, skal halda innan 15 daga frá aðalfundi.
8. gr.
Fastar starfsnefndir
- Á fyrsta stjórnarfundi skal stjórnin skipa í
fræðslu- og útgáfunefnd. Skulu 3 menn skipa nefndina. Einnig skal stjórnin
skipa í uppstillingarnefnd. Skulu 2 menn skipaðir í nefndina ásamt einum
stjórnarmanni. Formaður félagsins kallar nefndirnar saman. Nefndirnar skulu
skila skýrslu um störf sín til stjórnar fyrir aðalfund ár hvert og skulu þær
kynntar á aðalfundi á hverju ári.
- Starfsvið fræðslu- og útgáfunefndar skal vera að
vinna að fræðslu- og útgáfumálum félagsins.
- Starfsvið uppstillingarnefndar skal vera að koma
með tillögur um menn í stjórn og nefndir.
9. gr.
Afl atkvæða
Einfaldur meirihluti ræður
úrslitum mála á fundum félagsins. Tvo þriðju atkvæða þarf þó til að breyta
samþykktum félagsins, enda sé það gert á lögmætum aðalfundi.
10. gr.
Tillögur og
lagabreytingar
Tillögur og lagabreytingar
skal senda með aðalfundarboði.
VIÐBÓT
Stjórn FÍKNF gerir tillögu um að við lögin bætist 11. grein sem hljóði svo
11.gr
Komi til slita félagsins renna eignir þess til Kennarasambands Íslands.
Félagsmenn eiga ekki tilkall til eigna félagsins. Ákvörðun um slit félagsins
skal tekin á stjórnarfundi og ræður einfaldur meirihluti.
Samþykkt
26.06.2006
Fundarritari Rósa Gunnarsdóttir
|