Aðalfundur FÍKNF                                                    

Ágætu kennarar og skólafólk
 
Aðalfundur „Félags íslenskra  KENNARA Í NÝSKÖPUNAR- OG FRUMKVÖÐLAMENNT" verður haldinn þann 17. nóvember 2006 í sal KÍ við Laufásveg kl 17:00 - 18:30. Áður samþykkt lög fylgja sem viðhengi.

 

Dagskrá fundarins

1. Fundarsetning.

2. Skýrsla formanns.

3. Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram.

4. Staðan í námskrármálum kynnt.

5. Ný skipan nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda kynnt og áherslur ráðamanna.

6. Kosning í stjórn og varastjórn.

7. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga og eins til vara.

8. Önnur mál.

 

Kaffi á könnunni

 

Ef þið hafið spurningar er velkomið að hafa samband við stjórnina. 

 

Frekari upplýsingar á heimsíðu FIKNF http://www.inet.is/fiknf.

Allir grunn- og framhaldsskólakennarar velkomnir.

Kær kveðja.

 

Fyrir hönd stjórnar

Gísli Þorsteinsson cdt@khi.is

Svanborg R Jónsdóttir svanborg@aknet.is