|
Málþing "Félags
íslenskra kennara í nýsköpunar- og frumkvöðlamennt"
(FÍKNF).
Málþingið bar heitið:
"Í
takt við tímann? Staða nýsköpunar- og frumkvöðlamenntar á Íslandi".
Þar komu saman 39 einstaklingar ,áhugafólk um nýsköpun og
frumkvöðlamennt á Íslandi og kynntu hvað þeir hafa verið að gera á
fræðasviðinu. Þar voru fulltrúar af öllum skólastigum allt frá leikskóla til
háskóla og kynntu sitt og tóku þátt í umræðum um þá framtíðarsýn sem þeir
hafa í eigin starfi og fyrir fræðasviði í heild.
Á málþinginu fór félagið yfir stöðuna á
sviði nýsköpunar- og frumkvöðlamennta á öllum skólastigum og ræddi
framtíðarhorfur menntunar á þessum sviðum. Í ljósi
endurskoðunar á námskrám og skipulagi skólakerfisins svo sem fyrirhugaðrar
styttingar framhaldskólanna samþykkti málþingið eftirfarandi ályktun einróma
til menntamálaráðherra og helstu fjölmiðla:
Ályktun málþingins
Nýsköpunar og
frumkvöðlamennt er menntasvið þar sem nemendur fá tækifæri til að hagnýta
þekkingu sína á skapandi hátt og ýtir undir frumkvæði þeirra og
framtakssemi. Málþingið skorar á menntamálayfirvöld á Íslandi að móta
skýrari framtíðarsýn fyrir málaflokkinn, sem felur í sér samfellu og
vaxtarmöguleika gegnum allt skólakerfið.
Markmið
málþingsins var að draga fram í dagsljósið þau verkefni sem verið er að
vinna í skólum. Athygli vakti hversu útbreiddur áhugi var á
þróunarvinnu á sviðinu og á menntunarfræðilegum rannsóknum tengdum nýsköpun
og frumkvöðlamennt. Einng kom berlega í ljós sú gríðarlega þróunarvinna sem
hefur verið lögð í kennsluefni og námsskrá á framhaldsskóla stigi og
háskólastigi sem svaraði vel þeirri vinnu sem unnin hefur verið á síðust 15
árum á grunnskóla- og nú leikskólastigi.
Kom fram að nú þegar er að
myndast samfella milli skólastiga þar sem leikskólarnir taka almennt á
skapandi starfi og skilningi á vinnuheimi fullorðinna. Síðan tekur
grunnskólinn við með áherslur á nýsköpunarstarf og hagnýtingu þekkingar í
þágu hugmyndavinnu sem heldur áfram á unglingastigi út í kynningu á
atvinnulífinu og frumkvöðlafræði. Í efstu bekkju grunnskóla og í
framhaldskólunum hefur verið góð reynsla af því að vinna með fyrirtækjum á
borð við Junior Acheivement og Frumkvöðlafræðslunni og fleirum þar sem tekið
er á frumkvöðlafræði og viðskiptaframtaki. Í tillögum að nýrri námsskrá
framhaldsskólanna er nú einnig búið að skilgreina áfanga innan
viðskiptagreinanna sem tekur á nýsköpun og frumkvöðlafræði á viðameiri hátt
og brúar sá áfangi vel bilið upp á háskólastig. Á háskólastiginu hefur
þróunin á síðustu árum verið sú að skólarnir hafa komið sér upp
kennarastöðum, prófessorum eða dósentum í nýsköpun og frumkvöðlafræði. HÍ,
HR og Bifröst hafa farið þar fremstir í flokki en KHÍ og HA hafa aðallega
tekið á þessu í gegnum kennslufræðina hjá sér.
Eins og fram kom á málþinginu
er komin góð reynsla víða í skólakerfinu á nýsköpunar- og
frumkvöðlamenntakennslu. Slíkt menntaframboð er enn ómarkvisst og fer mikið
eftir einstökum skólum og kennurum hvort því er sinnt. Nauðsynlegt er að
hafa skýra sameiginlega sýn í málaflokknum sem nær yfir allt skólakerfið,
ekki síst hvað varðar námsskrár og stoðkerfi kennara. Benda má á að
nágrannar okkar danir og norðmenn eru að formfesta og leggja aukna áherslu á
nýsköpunar- og frumkvöðlamennt gegnum allt menntakerfið.
Dagskrá:
13:00 Setning
Svanborg R Jónsdóttir formaður Félags íslenskra kennara í nýsköpunar- og
frumkvöðlamennt.
13:10 Skapandi starf á
leikskólastigi
13:20
Nýsköpunarmennt á grunnskólastigi
- Svanborg R Jónsdóttir: Staða
nýsköpunarmenntar á grunnskólastigi.
- Lóa Kr Guðmundsdóttir nýsköpunarkennari í
Foldaskóla og nemendur segja frá nýsköpunarmennt í Foldaskóla.
- Harpa Magnúsdóttir nýsköpunarkennari í
Njarðvíkurskóla segir frá reynslu sinni af nýsköpunarkennslu.
- Guðrún Þórsdóttir skólastjóri Vinnuskóla
Reykjavíkur : Nýsköpun í náttúrunni
13:50 Framhaldsskólastig
Kynnir: Steingerður Hildimundardóttir Flensborgarskóla
Gunnar Jónatansson segir frá starfsemi Junior Ahcievement á Íslandi
Björn Gíslason verkefnisstjóri í Impru nýsköpunarmiðstöð segir frá
verkefninu Ungir frumkvöðlar.
14:20-14:40 Kaffihlé
14.40 Nýsköpunar- og
frumkvöðlamennt á háskólastigi
Örn Daníel Jónsson prófessor í viðskipta og hagfræðideild Háskóla Íslands.
15:30 Umræður
Málþinginu verður slitið kl 16:00
|